Ertu tilbúin í næsta skref en vantar rétta stuðninginn?
Ég hjálpa konum í rekstri að byggja fyrirtæki sem hafa skýra ferla og þjónustustöðla en ekki á álagi og yfirsýn eigandans.
Fáðu stuðing sem mun hjálpa þér að vaxa með skýrum ferlum og bættu sjálfsöryggi
3S Aðferðin
Structure
Traustur grunnur
Service
Happy viðskiptavinir
Scale
Vaxa með sjálfstrausti
Þetta er mín aðferðafræði fyrir árangur í viðskiptum
3S aðferðin er heildræn nálgun sem ég hef þróðað til að hjálpa fyrirtækjum að byggja upp sterkan grunn, veita framúrskarandi þjónustu og að vaxa með öryggi.
Structure
Góð fyrirtæki eru byggð á traustum grunni með skýrum, vel völdum og skráðum vinnuferlum.
Service
Framúrskarandi viðskiptavina upplifun skapar tengsl og breytir viðskipavinum í bestu talsmenn fyrirtækis.
Scale
Skráðir ferlar og frábær þjónusta gerir fyrirtækum kleift að vaxa á skilvirkan hátt án þess að fórna gæðum eða menningu.
Kannaður þín stig í 3S
Viltu vita hvernig þú ert að standa þig í þínum rekstri út frá 3S aðferðafræðinni.
Svaraðu nokkrum spurningu og þú færð að sjá hvar fyrirtækið þitt stendur í skipulagi, þjónustu og vexti og hvar það byggir enn of mikið á minni og yfirsýn þinni.
Ertu tilbúin í að beturbæta reksturinn? Kannaðu hvernig ég get aðstoðað þið.
Skoðaðu þjónustur í boði
Hvernig get ég aðstoðað þig?
Veldu þjónustuna sem hentar þín þörfum best. Ég er hér til að hjálpa þér að ná árangi.
Þjónustu- og verkefnastjóri í hlutastarfi
Sem verkefna- og þjónustustjóri kem ég inn í reksturinn til að aðstoða við uppbyggingu á rekstri þjónustu og annarra lykilverkefna. Minnka ringulreið og kem skipulagi á þannig að reksturinn geti vaxið án þess að allt sé háð eiganda og/eða stjórnanda.
Frekari upplýsingar
3S Stefnumótunarvinna
Markviss 3S stefnumótunarvinna sem miðar að því að forgangsraða verkefni sem varða ferla, þjónustu og vöxt. Við vinnum úr því hvað virkar, hvað virkar ekki og hvað skal einbeita á næst.
Frekari upplýsingar
Ráðgjöf
Áframhaldandi stefnumótandi stuðningur til að byggja upp skipulag, bæta þjónustu og styðja við ákvarðanir stjórnenda eftir því sem fyrirtækið vex. Hér er um að ræða retainer samband.
Frekari upplýsingar
3× lotur (55 min)
Þessir fundir eru hannaðir til að hjálpa þér að stíga út úr daglegum rekstri fyrirtækisins til að sjá hvaða blinda punkta þú ert ekki að sjá eða finna tíma til að vinna verk sem hafa setið á hakanum lengi og þannig mótað skýra stefnu fram á við.
Frekari upplýsingar
Ráðgjöf
Viltu hitta mig til að fara yfir og vinna með ákveðna áskorun, ákvörðun eða flöskuháls í fyrirtækinu. Þú kemur með skýra spurningu eða hugmynd og ferð með skýra hugmynd að framkvæmd.
Frekari upplýsingar
Þjónustuúttekt á netinu
Ítarleg úttekt á upplifun þjónustunnar á netinu. Þar sem greint er hvað er ekki kað uppfylla þjónustuloforð fyrirtækisins, hvað gæti gæti verið að valda því og skoðað hvaða tækifæri eru til úrbóta.
Frekari upplýsingar
Hæ, ég heiti Aníka Rós
Ég hef starfað í viðskiptum í yfir 20 ár og hef lært af eigin raun hvað virkar og hvað ekki þegar kemur að bygga upp og reka fyrirtæki.
Í dag starfa ég sem þjónustu- og rekstrarráðgjafi og ég legg áherslu á að aðstoða konur við að byggja upp sín fyrirtæki sem virka, ekki fyrirtæki sem virka ekki án þeirra.
Þegar ferlar, þjónusta og skýr stefna fyrir vöxt eru til staðar, verður vinnan betri, ákvarðanir auðveldari og vöxtur veldur ekki stöðugu álagi.
Ég hjálpa konum að fara frá óvissu yfir í vissu, frá ringulreið yfir í vöxt og frá því að gera allt sjálfar yfir í að leiða fyrirtækið með réttum ferlum og með hjálp réttra aðila og/eða kerfa.
Ég ákvað strax að byggja upp ráðgjafarþjónustuna á netinu til að geta stutt konur hvar sem þær eru. Sú þjónusta sem ég veiti er hagnýt og markviss og hjálpar viðskiptavinum að öðlast stjórn, sjálfstraust og fleiri góða daga í vinnunni.
Tilbúin að búa til fleiri skemmtilega vinnudaga og hafa fleiri ánægðari viðskiptavini?
Við skulum tala saman!
Það sem viðskipavinir segja
Heyrið frá því frábæra fólki sem ég hef haft þau forréttindi að vinna með.
Aníka er mjög fagleg og vinnur sína vinnu mjög vel og skilar flottu og faglegu verki. Aníka tók á heimsíðu....
Marta Sigurjónsdóttir
Hirzlan
Árið 2024 tók ég við rekstri á fyrirtæki sem ég hafði starfað hjá um nokkurn tíma. Þegar ég tók við var ég með hugmyndir....
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Gimli Fasteignasala
Ég er mjög ánægð með að hafa tekið tiboðinu hennar Aníku Rós um aðstoð við að skoða fyrirtækjareksturinn hjá....
Hanna S. Kjartansdóttir
Mýranaut ehf
Takk kærlega fyrir þennan fyrsta vinnukafla saman. Mig langaði að segja þér hversu mikið ég kunni að meta vinalega....
Luana Adriani
Loopyful Design
Aníka Rós gaf okkur virkilega góða hugleiðingu um hvað við getum bætt í starfi okkar. Hún er hvetjandi, jákvæð....
Elín, Auður og Inga
Birta Media
Í ár tók ég of mikið að mér. Milli þess að stjórna Gracelandic, kafa í ný verkefni, stunda meistaranám....
Grace Achieng
Gracelandic
Frequently Asked Questions
Hver er munurinn á Þjónustu- og verkefnastjóra í hlutastarfi og ráðgjafa?
Ráðgjafi skilar tillögum.
Sem þjónustu- og verkefnastjóri í hlutastarfi þá tek ég ábyrgð á verkinu með þér. Ég stíg inn í teymið og deili ábyrgðinni á skipulagi, þjónustu og framvindu. Saman skráum við það sem þarf að vera skráð og búum til raunverulegan kraft sem endist.
Þetta er ekki ráðgjöf utan frá. Þetta er leiðtogastuðningur innan frá.
Hvernig veit ég hvaða þjónusta er rétt fyrir mig?
Farðu í gegnum 3S Scorecardið.
Svaraðu 19 stuttum spurningum um hvernig fyrirtækið þitt er skipulagt í dag, hvernig þjónustan er afhent og hvert þú stefnir í þínum rekstri.
Þegar þú hefur lokið því fer ég yfir svörin þín og sendi þér mínar ráðleggingar. Ég mun einnig senda þér boð í 25 mínútna
frítt
samtal þar sem við förum saman yfir niðurstöðurnar og ég útskýri af hverju ég tel þetta vera rétta næsta skrefið fyrir þig núna.
Hvað er 3S aðferðafræðin?
3S aðferðin skoðar fyrirtækið þitt í gegnum þrjá vinkla:
Structure – hvernig fyrirtækið er skipulagt
Service – hvernig þjónustan er veitt
Scale – hver eru næstu skref í vexti
Þetta er mín aðferðafræði sem ég nota í minni vinnu til að greina hvað er að virka, hvað er ekki að virka og hvar fókusinn skal settur á.
Fáðu mína innsýn senda í þinn póstkassa
Skáðu þig á póstlistann til að hagnýt ráð um þjónustuhönnun, ferla og hugmyndir um hvernig er hægt að reka fyrirtæki betur. Það er hægt að afskrá sig hvenær sem er.
Thank you!
You have successfully joined our subscriber list.
Vinkonur í rekstri byrjar í júní
Fáðu aðgang að vinkonu sem elskar allt sem tengist rekstri og þjónustu.
Vinkona sem hjálpar þér að:
- forgangsraða verkefnum
- veitir stuðning
- skerpir fókus
- speglun
takmarkað pláss

Aníka Rós gaf okkur virkilega góða hugleiðingu um hvað við getum bætt í starfi okkar. Hún er hvetjandi, jákvæð og frábær í því sem hún gerir. Verkefnin sem hún úthlutaði okkur voru mjög gagnleg og komu að góðum notum. Á stuttum tíma ráðgjafar hennar tókst okkur að breyta vinnuflæði okkar og tímastjórnun sem jók samstundis framleiðni innan teymisins.
Elín Arnar, Auður Elísabet and Inga Margrét
Birta Media - birtamedia.is
Ég fékk viðskiptaráðgjöf hjá Aníku Rós í 6 vikur og var það mjög gagnlegt. Hún kom mér vel af stað og gaf mér góð ráð, ýtti mér út fyrir þægindarammann og gaf mér verkefni fyrir hvern tíma. Ég mæli með því við alla þá sem eru að stofna fyrirtæki eða eru í viðskiptum að fá ráðleggingar hjá Aníku Rós.
Gauja Hálfdánardóttir
calma.is og memoiceland.is
Ég gef Aníku Rós mín hæðstu og bestu meðmæli. Vinnutíminn minn getur verið mjög ólíkur svo Aníka Rós skipulagði okkar tíma sem hentuðu minni vinnuáætlun, ekki hennar endilega. Fyrir það er ég þakklát. Öll ráðin sem ég hef fengið hafa verð mjög gagnleg, sum ráðin hafði ég aldrei hugleitt eða dottið í hug áður. Sum hver mjög einföld en á sama tíma mjög dýrmæt. Verkefnin sem ég fékk þurfti ég ekki að búa til excel skjal sjálf, heldur voru þau send til mín í tölvupósti með einfaldri uppsetningu og mjög einföld og auðvelt að fylla út. Og það sem ég met mjög er að það var alltaf hægt að hafa samband við Aníku Rós jafnvel eftir vinnutíma. Þjónusta 100%
Sólveig Jan